Bandaríska háskólagolfið: Hrafn í 2. sæti á SSAC Championship eftir 1. dag
Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE, og „The Eagles“ golflið Faulkner háskólans taka sem stendur þátt í svæðamótinu, Southern States Athletic Conference (skammst. SSAC) Championships, sem fram fer í Lagoon Park, Montgomery, Alabama, dagana 15.-17. apríl. Þátttakendur eru 54 frá 11 háskólum.
Eftir fyrsta dag keppninnar er Hrafn í 2. sæti sem hann deilir með liðsfélaga sínum Daníel Jansen og efsta mann þess liðs sem er í efsta sæti í liðakeppninni, Matt Emery frá Lee University. Hrafn lék fyrsta hringinn í gær á 3 undir pari, 69 glæsihöggum og er aðeins 3 höggum á eftir þeim sem er á besta skorinu eftir fyrsta dag, Chase Miller frá College of Coastal Georgia, en hann lék á 6 undir pari, 66 höggum og lið hans er í 2. sæti í liðakeppninni.
Hrafn er á 1.-2. besta skorinu af liði sínu, „The Eagles“ sem er í 3. sæti í liðakeppninni og telur skor Hrafns því!!!
Sjá má úrslitin eftir 1. hring á SSAC Championship með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
