Hlynur Bergsson, GKG. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2018 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Hlynur og félagar í 15. sæti e. 1. dag á Tavistock

Hlynur Bergsson GKG og félagar í North Texas taka þátt í Tavistock Collegiate Invitational, sem fram fer í Windemere, Flórída, dagana 21.-23. október.

Þátttakendur eru 75 frá 15 háskólum.

Hlynur lék 1. hring á 7 yfir pari, 79 höggum og er T-67 eftir 1. dag.

North Texas, lið Hlyns, er í 15. og síðasta sæti í liðakeppninni eftir 1. dag.

Ekki gæfuleg byrjun en 2 keppnisdagar eftir!

Til þess að sjá stöðuna á Tavistock Collegiate Invitationl eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: