Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2018 | 04:00

Bandaríska háskólagolfið: Hlynur lauk keppni T-21 á Trinity Forest Inv.

Hlynur Bergsson, GKG eða Lenny eins og hann er kallaður í Bandaríkjunum og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, University of North Texas, tóku þátt í Trinity Forest Invitaional, sem fram fór í Trinity Forest golfklúbbnum í Dallas, Texas, dagana 23.-25. september s.l.

Þátttakendur voru 84 frá 13 háskólum.

Hlynur lék á samtals 1 undir pari, 212 höggum (71 68 73) og varð T-21 í einstaklingskeppninni.

Lið Hlyns, University of North Texas varð í 5. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á Trinity Forest Invitational SMELLIÐ HÉR: 

Næsta mót Hlyns og University of North Texas er 6. október n.k. í Texas.