Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2019 | 10:30

Bandaríska háskólagolfið: Helga T-15 e. fyrri dag Lady Blue Hen Inv.

Helga Kristín Einarsdóttir, GK og félagar í University of Albany taka þátt í Lady Blue Hen Invitational mótinu.

Þáttakendur eru 69 frá 11 háskólum.

Mótsstaður er Rehoboth Beach Country Club, á Rehoboth Beach í Delaware og fer mótið fram 19.-20. október og lýkur í dag.

Eftir fyrri daginn, þar sem spilaðar voru 36 holur er Helga T-15 í einstaklingskeppninni, búin að spila á samtals 4 yfir pari, 148 höggum (75 73).

Lið Helgu Kristínar, Albany er í 9. sæti í liðakeppninni.

Sjá má stöðuna á Lady Blue Hen Inv. með því að SMELLA HÉR: