Helga Kristín Einarsdóttir, NK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 14. 2017 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Helga Kristín T-38 e. 1. dag Spring Break Shootout

Helga Kristín Einarsdóttir, GK og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Albany, hófu leik í gær á Spring Break Shootout, en það mót fer fram í Lake Jovita Country Club, í Dade City, Flórída og stendur dagana 13.-14. mars 2017.

Þátttakendur eru 77 frá 13 háskólaliðum.

Helga Kristín var á besta skorinu af liðsfélögum sínum í Albany, en liðið er í næstneðsta sæti í liðkeppninni.

Helga Kristín lék á samtals 13 yfir pari, 157 höggum (79 78) og er T-38 e. fyrri dag.

Lokahringurinn fer fram í dag.

Fylgjast má með Helgu Kristínu og Albany á Spring Break Shootout með því að SMELLA HÉR: