Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2017 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Helga Kristín T-11 og Særós Eva T-39 e. 1. dag í NH

Helga Kristín Einarsdóttir, GK og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Albany og Særós Eva Óskarsdóttir, GKG og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Boston University taka þátt í Dartmouth Invitational mótinu.

Mótið fer fram dagana 23.-24. september 2017 í Hanover CC, í Hanover, New Hampshire (NH) og keppendur eru 63 frá 11 háskólum.

Helga Kristín lék 1. hring á 2 yfir pari, 74 höggum og er T-11 þ.e. deilir 11. sætinu með 5 öðrum keppendum.

Særós Eva lék 1. hring á 8 yfir pari, 80 höggum og er T-39 þ.e. deilir 39. sætinu með 3 öðrum keppendum.

Albany er í 2. sæti í liðakeppninni eftir 1. dag og Boston University í 6. sæti.

Sjá má stöðuna á Dartmouth Invitational með því að SMELLA HÉR: