Bandaríska háskólagolfið: Helga Kristín og Særós Eva luku keppni á Yale mótinu
Þær Helga Kristín Einarsdóttir, GK og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Albany og Særós Eva Óskarsdóttir, GKG og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Boston University luku keppni á Yale Women´s Fall Intercollegiate mótinu, en mótið stóð dagana 6.-8. október. Spilaðir voru 2 hringir, en 3. hringurinn, sem spila átti, var felldur niður.
Mótið fór fram í New Haven, Conneticut á golfvelli Yale háskóla, en gestgjafi var Yale háskóli.
Þátttakendur í mótinu voru 91 frá 15 háskólum.
Helga Kristín lék á samtals 10 yfir pari, 152 höggum (71 81). Því miður var 10 högga sveifla milli hringja hjá Helgu Kristínu en hún var T-4 þ.e. deildi 4. sætinu með öðrum eftir 1. dag, en lauk keppni T-35, meðal efri þriðjungs keppenda.
Skólalið Helgu Kristínar, Albany, varð í 10. sæti í liðakeppninni.
Særós Eva lék samtalsá 20 yfir pari, 162 höggum (80 82) og varð T-78.
Skólalið Særósar Evu, Boston University varð í 13. sæti í liðakeppninni.
Til þess að sjá lokastöðuna á Yale Women´s Fall Intercollegiate SMELLIÐ HÉR:
Næsta mót Helgu Kristínar og liðs hennar í Albany háskóla er Delaware Lady Blue Hen Invitational sem fram fer 21.-22. október n.k, en mótið er síðasta mót Albany á haustönn.
Næsta mót Særósar Evu og liðs hennar í Boston University verður ekki fyrr en eftir áramót, á vorönn 2018.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
