Bandaríska háskólagolfið: Haraldur sigraði á Border Olympics!!!
Þeir Haraldur Franklín Magnús, GR og Ragnar Már Garðarson, GKG, og the Ragin Cajuns, golflið Louisiana Lafayette kepptu á Border Olympics golfmótinu.
Mótið fór fram í Laredo CC í Texas 11. – 12. mars s.l.
Þátttakendur voru u.þ..b. 100 frá 18 háskólum, þannig að um fremur stórt mót var að ræða.
Haraldur Franklín sigraði á stórglæsilegan máta, lék á 10 undir pari, 134 höggum (66 68) og var sá eini sem átti tvo hringi undir 70! Á fyrri hringnum fékk Haraldur Franklín 7 fugla og 1 skolla en á þeim síðari 5 fugla og 1 skolla.
Með þessum sigri vann Haraldur Franklín einstaklingskeppni í bandaríska háskólagolfinu í 2. sinn en það hefir aðeins 4 íslenskum kylfingum tekist þ.e. Sigmundi Einari Mássyni, GKG; Kristni G. Bjarnasyni, GR og Guðmundi Ágúst Kristjánssyni, RG.
Kristján Þór Einarsson, GM hefir oftast sigrað á háskólamótum í Bandaríkjunum eða samtals þrisvar sinnum.
Ragnar Már varð T-22 á samtals 1 undir pari, 143 höggum (75 68).
Til þess að sjá lokastöðuna á Border Olympics SMELLA HÉR:
Næsta mót Haralds Franklín og Ragnars Más er Lone Star Inv. 21. mars n.k. , sem fer fram í Texas.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
