Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2016 | 05:00

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur og Ragnar Már T-19 e. 2. dag Sun Belt Championship

Haraldur Franklín Magnús, GR og Ragnar Már Garðarsson, GKG eru jafnir í 19. sæti eftir 2. hring Sun Belt Championship.

Báðir eru búnir að spila á 3 yfir pari, 145 höggum; Ragnar Már (75 70) og Haraldur Franklín (73 72).

The Sun Belt Championship fer fram á Raven GC í San Destin, Flórída.

Þátttakendur eru 55 frá 11 háskólum og er háskólalið þeirra Haralds Franklín og Ragnars Más, Louisiana Lafayette í 9. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá stöðuna á Sun Belt Championship e. 2. dag  SMELLIÐ HÉR: