Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2014 | 13:00

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín og the Ragin Cajuns sigruðu í Moe O´Brien holukeppninni

Haraldur Franklín Magnús, GR og golflið Louisiana Lafayette tóku þátt í Moe O´Brien holukeppninni, en gestgjafi mótsins en háskóli Ragnars Más Garðarssonar, McNeese State.   Þetta var bara 1 dags móts, sem 4 háskólalið tóku þátt í  – Leikið var fyrir hádegið og eftir hádegið sunnudaginn 19. október 2014.

Í gærmorgun mættu the Ragin Cajuns, þ.e. lið Haraldar Franklíns liði Southeastern Louisiana University (skammst. SLU) og fóru leikar svo að 3 leikir unnust 2 féllu á jöfnu en (SLU). (Úrslitin 3-0-2 þ.e. 3 sigrar engin töp og 2 jafnt) Í heildina vann lið Haraldar Franklíns Louisiana Lafayette 4-0.

Haraldur Franklín var einn þeirra sem vann sína viðureign í liði University of Louisiana, Lafayette (skammst. ULL), en leikirnir fóru á eftirfarandi máta:

Ross Davis (ULL) vann Christopher Carstensen (SLU), 3 & 2
Fernando Cruz Valle (ULL) og  Lawrence Allan (SLU), Allt jafnt
Thomas Strandemo (ULL) og Eamon Bradley (SLU), Allt jafnt
Louis Kelly (ULL) vann Grady Brame (SLU), 1 up
Haraldur Magnús (ULL) vann Baptiste Courtachon (SLU), 3 & 1

Gestgjafarnir McNeese State mættu golfliði University of Houston í gærmorgun og gjörsigruðu (5-0) þ.e. allar viðureignirnar unnust og var sigur Ragnars Más sannfærandi en hann vann sína viðureign 5&4.

Eftir hádegið í gær mættust síðan golflið Ragnars Más og Haraldar Franklíns og þar höfðu the Ragin Cajuns þ.e. lið Haraldar Franklíns, Louisiana Lafayette, betur þ.e. unnu 3 viðureignir, töpuðu 1 og síðan var allt jafnt í einni viðureign.

Haraldur Franklín tapaði sínum leik gegn Bob McIntyre 3&2 í liði McNeese og Ragnar Már tapaði einnig sínum leik gegn Fernando Cruz Valle í liði Louisiana Lafayette.

Næsta mót Haraldar Franklíns er ekki fyrr en á næsta ári þ.e. 9. febrúar 2015 þ.e. Oak Hills Invitational í San Antonio, Texas.

Á leikskrá Ragnars Más og McNeese State eru hins vegar enn 2 mót á þessu ári og það næsta er á Vero Beach, Flórída 27. október þ.e. um næstu helgi.