Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 17. 2014 | 10:30

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín og the Ragin Cajuns luku leik í 3. sæti í Memphis

Haraldur Franklín Magnús, GR og The Ragin Cajuns, golflið Louisiana Lafayette luku leik á Memphis Intercollegiate mótinu í gær.

Mótið var 3 hringja og stóð daganna 15.-16. september 2014. Þátttakendur voru 75 kylfingar frá 13 háskólum.

Það var University of Memphis í Tennessee, sem var gestgjafi mótsins.

Haraldur Franklín var á besta skori golfliðs Louisiana Lafayette – hann lék samtals á 2 yfir pari, 218 höggum  (72 73 73) og lauk keppni í 9. sæti í einstaklingskeppninni.

The Ragin Cajuns urðu í 3. sæti  í liðakeppninni.  Næsta mót Haraldar Franklín og the Ragin Cajuns er 26. september n.k. í New Mexico.

Til að sjá lokastöðuna í Memphis SMELLIÐ HÉR: