Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2015 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín lauk leik í 7. sæti á sterku háskólamóti

Haraldur Franklín Magnús og The Ragin Cajuns, lið Louisiana Lafayette tóku þátt í 30th Annual Louisiana Classics.

Mótið stóð 2.-3. mars 2015 og fór fram í Oakburne CC í Louisiana.  Mótinu lauk því í gær.

Þátttakendur í mótinu voru 81 frá 14 háskólum.

Haraldur Franklín lék á samtals 214 höggum (69 71 74) og lauk keppni í 7. sæti, sem er stórglæsilegur árangur á þessu sterka móti.

The Ragin Cajuns urðu í 3. sæti í liðakeppninni. Næsta mót Haraldar Franklín og The Ragin Cajun er í Texas 13. mars n.k.

Til þess að sjá lokastöðuna á Louisiana Classic SMELLIÐ HÉR: