Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 9. 2014 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín lauk keppni í 13. sæti á Old Waverly

Haraldur Franklín Magnús, GR og Axel Bóasson, GK tóku þátt í Old Waverly Collegiate meistaramótinu á West Point í Mississippi.

Þátttakendur voru 78 frá 15 háskólum.

Haraldur Franklín lék á samtals sléttu pari, 216 höggum (69 74 73) og varð í 13. sæti í einstaklingskeppninni.  Hann var jafnframt á besta skori golfliðs Louisiana Lafayette, sem varð í 12. sæti í liðakeppninni.

Axel átti fremur slakan endasprett eftir gott gengi á sérstaklega 2. hring mótsins.  Hann lék samtals á 7 yfir pari, 223 höggum (74 70 79) og hafnaði í 55. sæti mótsins.  Lið Axels Mississippi State varð í 1. sæti í liðakeppninni, en skor Axels taldi ekki þar sem hann var á 5. og lakasta skorinu.

Haraldur Franklín og Axel hittast e.t.v. einnig á næsta móti en skólalið beggja keppa næst á Reunion Intercollegiate mótinu, sem fram fer 14. apríl n.k. í Madison, Mississippi.

Til þess að sjá lokastöðuna á Old Waverly Collegiate meistaramótinu  SMELLIÐ HÉR: