Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2014 | 11:30

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín í 13. sæti e. fyrri dag í Tennessee

Haraldur Franklín Magnús, GR og The Raging Cajuns, golflið Louisiana Lafayette eru við keppni á Memphis Intercollegiate mótinu.

Mótið er 3 hringja og stendur daganna 15.-16. september 2014 og lýkur því í kvöld. Þátttakendur eru 75 kylfingar og 13 háskólalið.

Það er University of Memphis í Tennessee, sem er gestgjafi mótsins.

Haraldur Franklín er á besta skori golfliðs Louisiana Lafayette eftir 2 leikna hringi, en The Raging Cajuns eru í 8. sæti eftir fyrri dag mótsins í liðakeppninni.

Haraldur Franklín lék fyrstu tvo hringi á samtals 145 höggum (72 73) og er í 13. sæti í einstaklingskeppninni.

Til þess að fylgjast með gengi Haraldar Franklíns í Memphis SMELLIÐ HÉR: