Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG. Mynd: GÚ
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2017 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Gunnhildur og Særós Eva luku leik á Edwin Watts

Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG, og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Elon og Særós Eva Óskarsdóttir, GKG, tóku þátt í  gríðarstóru móti, Edwin Watts Kiawah Island Classic, dagana 26.-28. febrúa og lauk mótinu í gær.

Þátttakendur voru 232 frá 43 háskólum, þar af kepptu 17 sem einstaklingar, en þeirra á meðal var Særós Eva, en hún tók ekki þátt í liðakeppninni að þessu sinni, f.h. háskóla síns Boston University.

Gunnhildur lauk keppni T-86 en hún lék á samtals 230 höggum (77 82 71).

Særós Eva varð í 230. sæti en hún lék á 277 höggum (92 95 90) og bætti sig lokahringinn.

Sjá má lokastöðuna á Edwin Watts Kiawah Island Classic með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Gunnhildar er 9. mars n.k. í Norður-Karólínu og næsta mót Særósar Evu er Fresno State Classic, en þá heimsækir Særós Eva og lið hennar Boston University, lið Guðrúnar Brár Björgvinsdóttur, Fresno State í Kaliforníu, en Fresno State er gestgjafi mótsins.