Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG. Mynd: GÚ
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 14. 2016 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Gunnhildur og Elon luku leik í 14. sæti í S-Karólínu

Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG og golflið Elon voru við keppni á Golfweek Program Challenge mótinu, sem fram fór á Pawley´s Island í Suður-Karólínu dagana 11-13. september og lauk því í gær.

Þátttakendur voru 80 frá 16 háskólum.

Gunnhildur lék á samtals 31 yfir pari, 244 höggum (82 82 80) og varð T-69.

Elon háskólalið Gunnhildar varð í 14. sæti í mótinu.

Næsta mót Gunnhildar og Elon er Lady Pirate Intercollegiate sem fram fer dagana 26.-27. september n.k.

Sjá má lokastöðuna í Golfweek Program Challenge mótinu með því að SMELLA HÉR: