Guðrún Brá Björgvinsdóttir er uppáhaldskvenkylfingur Jóhannesar.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2016 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá T-19 e. 1. dag í Missouri

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, hóf í gær 3. október 2016 leik á Johnnnie Imes Invitational ásamt liði sínu í bandaríska háskólagolfinu, Fresno State.

Mótið fer fram í The Club at Old Hawthorne í Columbia, Missouri og eru þátttakendur 82 úr 15 háskólaliðum.

Guðrún Brá hefir leikið fyrstu 2 hringina á samtals 2 yfir pari, 146 höggum (70 76).

Efstar eru tveir kylfingar úr MIZZOU og ETSU, sem báðar hafa spilað á samtals 6 undir pari.

Guðrún Brá er T-19 í einstaklingskeppninni eftir 1. dag, en Fresno State er í 2. sæti í liðakeppninni.

Þriðji og lokahringurinn verður spilaður í dag.

Sjá má stöðuna á Johnnie Imes Inv. eftir 1. dag með því að SMELLA HÉR: