Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá sigraði á Mountain West Conference Champ.!!!
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golflið Fresno State „The Bulldogs“ tóku þátt í Mountain West Conference Championship svæðismótinu, en mótinu lauk í gær. Mótið stóð dagana 24.-26. apríl 2014 og þátttakendur voru 45 frá 9 háskólum.
Mótið fór fram á Rancho Mirage, í Kaliforníu þar sem Kraft Nabisco risamót kvennagolfsins er haldið á hverju ári.
Guðrún Brá sigraði Mountain West Conference Championship, en þetta er fyrsta mótið sem Guðrún Brá sigrar í, í bandaríska háskólagolfinu!!! Þetta er ekkert annað en stórglæsilegt, en Guðrún Brá er tiltöulega nýbyrjuð í bandaríska háskólagolfinu, byrjaði nú rétt eftir áramót.
Guðrún Brá lék á samtals 2 yfir pari, 218 höggum (71 71 76).
Lið Fresno State varð í 3. sæti í mótinu og óþarfi að segja að Guðrún Brá var á besta skorinu!
Til þess að sjá lokastöðuna í Mountain West Conference Championship SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
