Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2014 | 10:22

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá hefur leik á Silverado Showdown

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og The Bulldogs, golflið Fresno State hefja leik í dag á Silverado Showdown mótinu, í Silverado Resort and Spa  í Napa, Kaliforníu.

Mótið stendur dagana 14.-15. apríl 2014 og eru þátttakendur 75 frá 15 háskólum.

Guðrún Brá fer út frá 12. teig kl. 8:30 að staðartíma (þ.e. kl. 15:30 hér heima á Íslandi).

Fylgjast má með gengi Guðrúnar Brár með því að SMELLA HÉR: