Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2014 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá og Fresno luku leik í 9. sæti í Las Vegas

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golflið Fresno State tóku þátt í  Las Vegas Collegiate Showdown í Las Vegas, Kaliforníu.

Mótið stóð dagana 26.-28. október og þátttakendur voru 96 frá 19 háskólum.

Gestgjafi var UNLV  (stendur fyrir University of Las Vegas).

Guðrún Brá lék á samtals 12 yfir pari (78 72 78) og varð í 68. sæti í einstaklingskeppninni og á 4. besta heildarskori Fresno State, sem hafnaði í 9. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á Las Vegas Collegiate Showdown SMELLIÐ HÉR: 

Þetta er síðasta mót Guðrúnar Brá á haustönn, en næsta mót hjá henni og Fresno State er The Gold Rush á Long Beach Kaliforníu á næsta ári 2015.