Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2013 | 13:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og ETSU luku leik í 9. sæti á Tar Heel

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið East Tennessee State luku leik í Tar Heel Intercollegiate mótinu, en það fór fram á golfvelli UNC Finley í á Chapel Hill, Norður-Karólínu.

Það voru 81 keppendur frá 14 háskólum sem þátt tóku.

Guðmundur Ágúst hafnaði í 38. sæti í einstaklingskeppninni, sem hann deildi ásamt 6 öðrum.

Hann lék á samtals 8 yfir pari, 224 höggum (71 74 79).

Guðmundur Ágúst var á 3.-4. besta skori liðs síns, ETSU Bucs, sem varðí 9. sæti í liðakeppninni.

Næsta mót Guðmundar Ágústs og ETSU er Jack Nicklaus Invitational í Columbus, Ohio, 29. september n.k.

Til þess að sjá lokastöðuna á Tar Heel Intercollegiate mótinu  SMELLIÐ HÉR: