Bandaríska háskólagolfið: Erfið byrjun hjá íslensku kylfingunum á Hawaii
Tveir íslenskir kylfingar í bandaríska háskólagolfinu, Axel Bóasson, GK og golflið Mississippi State og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETSU eru nú staddir á Hawaii, þar sem þeir munu taka þátt í Warrior Princeville Makai Invitational í Makai golfklúbbnum í Princeville.
Mótið stendur dagana 4.-6. nóvember og þátttakendur eru 93 frá 18 háskólum.
Eftir 1. dag eru háskólalið Axels, Mississippi State, í 2. sæti, en skor Axels telur ekki þar sem hann er í 5. og síðasta sætinu en 4 bestu skor telja. Í einstaklingskeppninni er Axel T-56 þ.e. deilir 56. sætinu með 13 öðrum kylfingum. Axel lék fyrsta hring á 2 yfir pari, 74 höggum.
Sömu sögu er eiginlega að segja um Guðmund Ágúst Kristjánsson. Um skeið var hann í 6. sætinu í einstaklingskeppninni þ.e. eftir 9 spilaðar holur, en hann lauk fyrri deginum á mótinu á sléttu pari, 72 höggum og deilir 39. sætinu með 13 öðrum. Í liðakeppninni er lið Guðmundar Ágústs, ETSU í 5. sæti og telur skor hans ekki þar sem hann, líkt og Axel er á 5. og lakasta skori liðs síns.
Báðir hafa þeir Axel og Guðmundur Ágúst oft spilað betur.
Axel á rástíma kl. 9:36 að staðartíma og Guðmundur Ágúst kl. 8:51 (ath. að það er 10 tíma, tímamismunur milli Íslands og Hawaii). Axel hefur því leik kl. 19:36 að íslenskum tíma og Guðmundur Ágúst kl. 18:51 að okkar tíma hér heima á Íslandi. Báðir hefja leik á 1. teig.
Til þess að fylgjast með gengi þeirra Axels og Guðmundar Ágústs SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

