Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU. Mynd: ETSU
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2014 | 16:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst í 29. sæti e. 1. dag Rudolph Mason Open

Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETCU „The Bucs“ eru við keppni á Mason Rudolph meistaramótinu, en mótið fer fram í Vanderbilt Legends Club í Franklín, Tennessee.

Mótið fer fram dagana 4.- 6. apríl 2014 og eru þátttakendur 78 frá 14 háskólum.

Guðmundur Ágúst lék fyrsta hringinn á mótinu á 3 yfir pari, 75 höggum og er sem stendur í 29. sætinu í einstaklingskeppninni. Á hringnum fékk Guðmundur Ágúst 2 fugla, 4 skolla og 1 skramba.

Guðmundur Ágúst er á 1.-2. besta skori ETSU, sem er í 8. sætinu í liðakeppninni.

Til þess að fylgjast með gengi Guðnumdar Ágústs og ETCU SMELLIÐ HÉR: