Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 14. 2023 | 23:59

Bandaríska háskólagolfið: Gott gengi Sverris á vorönn ´23 m/ Appalachian!!!!

Sverrir Haraldsson, GM, spilar í bandaríska háskólagolfinu með liði Appalachian State.

Hann er búinn að spila í 2 mótum það sem af er vorönn.

Þann 25.-26. febrúar s.l. tók Sverrir þátt í Wolfpack Invitational, sem fram fór á Loonie Pool golfvellinum í Raleigh, Norður-Karólínu.

Honum er mikið hrósað fyrir frammistöðu sína þar, á vefsíðu Appalachian, en hann var bestur í liðinu í mótinu; sjá með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má úrslit úr Wolfpack Invitational 2023 með því að SMELLA HÉR: 

______

Síðan tók Sverrir þátt í The Bash at the Beach 13.-14. mars 2023, móti sem lauk í dag.

Mótið fór fram í Surf Golf and Beach Club á Myrtle Beach, S-Karólínu.

Þetta var stórt mót, en þátttakendur voru 108 frá 19 háskólum.

Skemmst er frá því að segja að Sverrir varð T-14 í einstaklingskeppninni á mótinu; lék á samtals 1 yfir pari, 214 höggum (75 66 73).

Glæsilegur árangur Sverris!!! -Sverrir átti hlut í því að  A-lið Appalachian varð í 3. sæti í liðakeppninni.

Sjá má umfjöllun um Sverri & félaga á vefsíðu skólans  með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má lokastöðuna á The Bash at the Beach með því að SMELLA HÉR: 

Næsta mót Sverris er Sea Hawk Intercollegiate mótið í Wilmington, Norður-Karólínu, dagana 26-27. mars n.k.