Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2012 | 21:45

Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra í 6. sæti eftir 2. dag á West Coast Conference Championship

Í dag var í San Juan Oaks Golf Club í Hollister, Kaliforníu spilaður 2. hringur á West Coast Conference Championship. Mótið stendur í  3 daga þ.e. til morgundagsins, 18. apríl 2012. Þátttakendur er 30 úr 6 háskólum.

Meðal þátttakenda er Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og liðsfélagar hennar í University of San Francisco.  Eygló Myrra spilaði á +4 yfir pari í dag, þ.e. á  76 höggum, en hún fékk 6 skolla og 2 fugla.  Samtals er hún því búin að spila á +7 yfir pari, samtals 161 höggi  (75 76) og er sem stendur í 6. sæti.

Lið University of San Francisco er 3. sæti af háskólaliðunum.

Golf 1 óskar Eygló Myrru góðs gengis á morgun.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á West Coast Conference Championship smellið HÉR: