Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2012 | 21:30

Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra í 2. sæti á West Coast Conference Championship

Í San Juan Oaks Golf Club í Hollister, Kaliforníu fer nú fram West Coast Conference Championship og stendur í 3 daga þ.e. til 18. apríl 2012. Þátttakendur er 30 úr 6 háskólum.

Meðal þátttakenda er Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og liðsfélagar hennar í University of San Francisco.  Eygló Myrra spilaði á +3 yfir pari,  75 höggum í dag;  fékk 3 fugla, 4 skolla og 1 slæman skramba á 15. braut.

Lið University of San Francisco er 1. sæti af háskólaliðunum.

Golf 1 óskar Eygló Myrru góðs gengis á morgun.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á West Coast Conference Championship smellið HÉR: