Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2018 | 22:00

Bandaríska háskólagolfið: Eva Karen og ULM luku keppni í 12. sæti í Louisiana

Eva Karen Björnsdóttir, GR og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu University of Louisiana at Monroe (ULM) tóku þátt í LSU Tiger Golf Classic mótinu.

Mótið fór fram í Baton Rouge, Louisiana, dagana 23.-25. mars sl.

Þátttakendur voru 72 frá 12 háskólum.

Eva Karen lauk keppni á  36 yfir pari, 252 höggum (87 79 86) og varð T-67 þ.e. jöfn einum öðrum keppanda í 67. sæti í mótinu.

Lið Evu Karenar, ULM, varð í 12. sæti liðakeppninnar og Eva Karen á næstbesta skori liðsins.

Til þess að sjá lokastöðuna á LSU Tiger Golf Classic SMELLIÐ HÉR:

Næsta mót Evu Karenar og ULM er 30. mars nk. í Kentucky.

Aðalfréttagluggi: Eva Karen Björnsdóttir, GR. Mynd: Golf 1