Egill Ragnar Gunnarsson, GKG. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 19. 2018 | 19:00

Bandaríska háskólagolfið: Egill Ragnar og félagar í 3. sæti

Egill Ragnar Gunnarsson, GKG og félagar í Georgia State tóku þátt í Autotrader Collegiate Classic mótinu, sem fram fór 15.-16. október sl. í Berkley Hills CC í Duluth, Georgia.

Þátttakendur voru 75 frá 12 háskólum.

Egill Ragnar varð T-40 í einstaklingskeppninni með skor upp á 3 yfir pari, 219 högg (74 75 70).

Lið Georgia State varð í 3. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á Autotrader Collegiate Classic SMELLIÐ HÉR:

Næsta mót Egils Ragnars og Georgia State er Tiger Inv. sem fram fer 24. október n.k.