Björn Óskar t.h.
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 17. 2018 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Björn Óskar og félagar urðu í 11. sæti í Kentucky

Björn Óskar Guðjónsson, GM og golflið hans The Ragin Cajuns úr Louisiana Lafayette háskólanum tóku þátt í Louisville Cardinal Classic mótinu, sem fram fór 15.-16. september og lauk því í gær.

Spilað var á golfvelli University of Louisville í Kentucky.

Keppendur voru 92 frá 16 háskólum.

Björn Óskar lauk keppni T-61 með skor upp á 7 yfir pari 220 högg (74 72 74).

The Ragin Cajuns luku keppni í 11. sæti í liðakeppninni.

Sjá má lokastöðuna´i mótinu með því að SMELLA HÉR: