Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2018 | 20:00

Bandaríska háskólagolfið: Björn Óskar og félagar luku keppni á Inverness Int. í 8. sæti

Björn Óskar Guðjónsson, GM og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, The Ragin Cajuns lönduðu 8. sætinu á Inverness Intercollegiate, en mótið fór fram dagana 24.-25. september 2018 og lauk því í dag.

Mótið fór fram í Inverness Club í Toledo, Ohio.

Björn Óskar varð T-41 af 78 keppendum, þ.e. fyrir miðju í mótinu, en Björn Óskar lék á samtals 15 yfir pari, 228 höggum (75 79 74).

Lið Björn Óskars, The Ragin Cajuns urðu í 8. sæti í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á Inverness Intercollegiate SMELLIÐ HÉR: