Gísli Sveinbergsson, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 30. 2016 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Bjarki og Gísli T-6 e. 2. dag MAC

Þeir Gísli Sveinbergsson, GK og Bjarki Pétursson, GB eru aldeilis að standa sig vel á MAC Championship mótinu, en það stendur dagana 28.-30. apríl 2016.

Mótið fer fram í Highland Meadows, Sylvania, í Ohio.

Þátttakendur eru 45 sterkust kylfingarnir á svæðinu frá 9 háskólum.

Eftir 2. keppnisdag er Gísli T-6i búinn að spila fyrstu þrjá hringina á samtals 4 yfir pari, 217 höggum (71 72 74).

Bjarki er einnig T-6 búinn að spila á 4 yfir pari, 217 höggum.

Kent State lið þeirra Gísla og Bjarka er í 1. sæti í liðakeppninni fyrir lokahringinn, sem leikinn verður í kvöld.

Til þess að sjá stöðuna eftir fyrstu 2 hringi mótsins SMELLIÐ HÉR: