Bjarki Pétursson, GB. Photo: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2016 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Bjarki lauk leik T-13 í Royal Oaks!

Bjarki Pétursson, GB, Gísli Sveinbergsson GK og Rúnar Arnórsson, GK léku allir í Royal Oaks Intercollegiate mótinu í Dallas, Texas.

Þátttakendur voru um 72 frá 11 háskólum og fór mótið fram í Royal Oaks Country Club og stóð dagana 24.-25. október 2016 og lauk í gær.

Bjarki lék best Íslendinganna á samtals  1 yfir pari, 214 högg (68 75 71);  átti m.a. stórglæsilegan 1. hring upp á 3 undir pari.

Gísli lék á samtals 2 yfir pari, 215 höggum og varð T-21.

Rúnar varð T-43 – spilað á samtals 6 yfir pari.

Kent State, lið Bjarka og Gísla varð í 4. sæti í liðakeppninni en Minnesota State T-7.

Til þess að sjá lokastöðuna á Royal Oaks Intercollegiate SMELLIÐ HÉR: