Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2017 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Bjarki, Gísli og Kent State luku leik í 2. sæti á General Hacklar!

Bjarki Pétursson, GB og Gísli Sigurbergsson og golflið þeirra í bandaríska háskólagolfinu, Kent State tóku þátt í General Hacklar Championship.

Mótið fór fram í The Dunes Golf & Beach Club á Myrtle Beach í Suður-Karólínu, dagana 11. – 12. mars 2017 og lauk því í gær.

Keppendur voru 84 frá 15 háskólum.

Gísli lék á samtals sléttu pari, 144 höggum (74 70) og lauk keppni T-9, en 3. hringur var ekki spilaður vegna slæms veðurs og var skor eftir 36 holur látið standa.

Bjarki lék á samtals 3 yfir pari, 147 höggum (73 74) og varð því T-27.

Kent State lauk keppni í 2. sæti í liðakeppninni!!!

Sjá má lokastöðuna á General Hacklar mótinu með því að SMELLA HÉR: