Bjarki Pétursson, GB. Photo: Golf 1 Bandaríska háskólagolfið: Bjarki, Björn og Gísli við keppni í Louisiana
Bjarki Pétursson GB og Gísli Sveinbergsson GK og golflið þeirra í bandaríska háskólagolfinu, Kent State hófu leik á Louisiana Classics mótinu, sem fram fer í Oakbourne CC í Lafayette, Louisiana.
Gestgjafi mótsins er Louisiana Lafayette háskólinn, en Björn Óskarsson, GM, spilar einmitt með því háskólaliði.
Mótið stendur dagana 26.-27. febrúar 2018 og lýkur því í dag. Þáttakendur eru 84 frá 15 háskólum.
Eftir fyrstu tvo hringi er Bjarki búinn að standa sig best af Íslendingunum, hefir spilað á 143 höggum (70 73) og er T-21. Gísli hefir spilað á 144 höggum (73 71) og er T-32. Liðsfélagi þeirra Bjarka og Gísla, Ian Holt er í 1. sæti í einstaklingskeppninni!
Kent State, lið Bjarka og Gísla er þ.a.l. í 3. sæti í liðakeppninni.
Björn hefir spilað á 149 höggum (76 73) og er T-63. Lið hans, Louisiana Lafayette er í 13. sæti.
Sjá má stöðuna á Louisiana Classics með því að SMELLA HÉR:
Í aðalfréttaglugga: Bjarki Pétursson, GB. Mynd: Golf 1
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
