Birgir Björn Magnússon, GK. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2018 | 06:00

Bandaríska háskólagolfið: Birgir Björn í 4. og Arnar Geir í 5. sæti á MVC Fall Inv.

Dagana 24.-25. september s.l. fór fram MVC Fall Invitational á Indian Foothills golfvellinum, í Marshall, Missouri.

Þátttakendur voru 47 frá 8 háskólum.

Meðal þátttakenda voru 3 íslenskir kylfingar, Birgir Björn Magnússon og Gunnar Guðmundsson sem kepptu með liði sínu Bethany Swedes og „heimamaðurinn“ og klúbbmeistari GSS 2018 og mörg undanfarin ár, Arnar Geir Hjartarson.

Arnar Geir Hjartarson, GSS og Missouri Valley

Skemmst er frá því að segja að Birgir Björn landaði 4. sætinu í einstaklingskeppninni og Arnar Geir 5. sætinu!

Birgir Björn lék á 2 undir pari, 142 höggum (70 72) en Arnar Geir á 1 undir pari, 143 höggum (70 73).

Gunnar lék á samtals 10 yfir pari, 154 höggum (74 80) og varð T-19.

Missouri Valley varð í  1. sæti en Bethany Swedes lönduðu 2. sætinu í liðakeppninni.

Sjá má lokastöðuna á MVC Fall Invitational með því að SMELLA HÉR: 

Næsta mót Bethany Swedes er 1. október n.k. í Kansas og næsta mót Missouri Valley sama dag í Missouri.