Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 14. 2015 | 11:00

Bandaríska háskólagolfið: Berglind T-16 e. 1. dag 3M Jaguar Intercollegiate

Berglind Björnsdóttir, GR og golflið UNCG,  taka þátt í Jaguar Intercollegiate mótinu, sem fram fer í Forest Hills golfklúbbnum í Augusta, Georgia.

Mótið stendur dagana 13.-15. mars 2015 og þátttakendur eru 74 frá 13 háskólum.

Berglind lék 1. hring á 5 yfir pari,  76 höggum og stendur sig best allra í liði UNCG, sem er í 12. sæti í liðakeppninni.

Mótið er 54 hola og verður 2. hringurinn spilaður í dag.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: