Berglind Björnsdóttir, GR, að keppa fyrir UNCG í Bandaríkjunum. Mynd: Spartans
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2012 | 18:45

Bandaríska háskólagolfið: Berglind Björns hefir lokið 2. hring á JMU Eagle Landing Invite

Í gær hófst í Eagle Landing Golf Club í Orange Park, Flórída JMU Eagle Landing Invite mótið. Þátttakendur eru 101 frá 18 háskólum, þ.á.m. Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG. Mótið stendur dagana 9.-11. mars 2012.

Berglind spilaði 1. hring á +7 yfir pari, 79 höggum í gær, en í dag var hún á +9 yfir pari, 81 höggi.   Samtals er Berglind því á samtals +16 yfir pari eftir 2 fyrstu daga mótsins.  Enn eiga margar eftir að ljúka leik og því ekki hægt að segja með nákvæmni til um sætið sem Berglind verður í eftir 2. dag. Í gær var hún T-63, en eftir daginn í dag er ljóst að hún er í sæti eitthvað neðar (sem stendur í T-79, en sætisröðun getur enn breyst nokkuð því sem líður á kvöldið.) Því miður lítur út fyrir að Berglind verði meðal neðri 25% þátttakenda í mótinu eftir 2. dag.

Golf 1 óskar Berglindi góðs gengis á morgun!

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. hring á JMU Eagle Landing Invite smellið HÉR: