Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 22. 2012 | 15:00

Bandaríska háskólagolfið: Axel Bóasson ekki að finna sig á 2. hring SEC Championship

Axel Bóasson, GK og lið hans í Mississippi State taka nú þátt í SEC (South Eastern Conference) Championship á Sea Island golfvellinum fræga á St. Simmons Island í Georgíu ríki. Í mótinu taka þátt 60 kylfingar frá 12 háskólum.

Á fyrsta hring spilaði Axel á 76 höggum og í gær var hann 80 höggum og er deilir nú neðsta sætinu í mótinu er T-59. Hann er samtals búinn að spila á +23 yfir pari, samtals 156 höggum,

The Bulldogs,(ísl: Bolabítarnir) lið Mississippi State háskóla er nú í 12. og neðsta sæti en var í 9. sætinu með 2 öðrum háskólum í gær.

Golf 1 óskar Axel og Bolabítunum, liði Mississippi State háskóla góðs gengis í dag á lokahring SEC Championship!

Til þess að sjá stöðuna á SEC Championship eftir 2. dag smellið HÉR: