
Bandaríska háskólagolfið: Axel á besta skori Mississippi State á Jerry Pate National Intercollegiate mótinu eftir 1. dag
Þeir Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR keppa, dagana 15.-16. október ásamt golfliði Mississippi State á Jerry Pate National Intercollegiate mótinu.
Þátttakendur eru 60 frá 12 háskólum og spilað er á golfvelli Old Overton Club í Vestavia Hills, Alabama.
Axel er á besta skorinu í liði Mississippi State spilaði hringina 2 í gær, fyrri dag mótsins, á samtals 5 yfir pari, 145 höggum (71 74). Eftir fyrri hringinn var Axel í 7. sætinu í mótinu en óljóst er á þessari stundu í hvaða sæti hann lendir því nokkrir eiga eftir að ljúka leik. Ljóst er þó að hann er á efri fjórðungi skortöflunnar
Haraldur Franklín var á samtals 9 yfir pari, 149 höggum (74 75) og á 4. besta skorinu í liði Mississippi State og telur skor hans þar af leiðandi.
Mississippi State er í 6. sæti í liðakeppninni sem stendur.
Golf 1 óskar Axel og Haraldi Franklín góðs gengis í mótinu!
Til að sjá stöðuna eftir 1. dag Jerry Pate National Intercollegiate mótsins SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024