Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2013 | 04:00

Bandaríska háskólagolfið: Axel á 71 og Guðmundur Ágúst á 75 á 2. degi í Hawaii

Tveir íslenskir kylfingar í bandaríska háskólagolfinu, Axel Bóasson, GK og golflið Mississippi State og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETSU eru nú staddir á Hawaii, þar sem þeir taka þátt í Warrior Princeville Makai Invitational í Makai golfklúbbnum í Princeville.

Mótið stendur dagana 4.-6. nóvember og þátttakendur eru 93 frá 18 háskólum.

Eftir 2. dag eru Axel og félagar í 3. sæti í mótinu og er skor Axels farið að telja en hann deilir 4. sætinu yfir besta skor liðs síns.  Axel er búinn að spila á samtals 145 höggum (74 71) og er sem stendur T-53, þ.e. deilir 53. sætinu með 6 öðrum.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU. Mynd: ETSU

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU. Mynd: ETSU

Guðmundur Ágúst og ETSU deila 7. sætinu í liðakeppninni. Guðmundur Ágúst hefir leikið á 147 höggum (72 75) en er því miður á 5. og lakasta skori liðs síns þannig að það telur ekki í liðakeppninni. Í einstaklingskeppninni er Guðmundur Ágúst T-64.

Til þess að sjá stöðuna á 2. degi í Hawaii SMELLIÐ HÉR: