Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR og The Crusaders í Belmont Abbey. Mynd: Golf 1. Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi varð í 10. sæti á Myrtle Beach Intercollegiate
Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR og The Crusaders, þ.e. golflið Belmont Abbey, kepptu á Myrtle Beach Intercollegiate í Suður-Karólínu, dagana 1. -2. október, þ.e. mótinu lauk í gær.
Myrtle Beach mótið var stórt og voru 3 Íslendingar staddir á því Ragna Björk Ólafsdóttir, GKG, sem náði þeim glæsilega árangri að verða í 3. sæti auk þess sem lið hennar St. Leo varð í 1. sæti og Íris Katla Guðmundsdóttir, GR, sem var þar með The Royals, golfliði The Univeristy of Queens, Charlotte. Keppt var bæði í karla og kvennaflokki og því var einnig staddur þar Arnór Ingi, GR, með golfliði Belmont Abbey, The Crusaders.
Arnór Ingi lék á samtals 139 höggum (73 69) og var á 2. besta skori liðs síns. Arnór Ingi deildi 10. sætinu í einstaklingskeppninni og The Crusaders lentu í 4. sæti í liðkeppninni á mótinu, sem er glæsilegt.
Næsta mót Arnórs Inga er King College Invitational í Bristol, Tennessee, 8.-9. október n.k.
Til þess að sjá úrslitin á Myrtle Beach Intercollegiate SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá umfjöllun Belmont Abbey um mótið SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
