Ragnheiður Jónsdóttir | október. 19. 2018 | 20:00

Bandaríska háskólagolfið: Arnar Geir lauk keppni í 2. sæti á Lindenwood-Belleville

Arnar Geir Hjartarson, GSS og félagar í Missouri Valley tóku þátt í Lindenwood-Belleville Fall Invite, sem fram fór 15.-16. október s.l.

Mótið fór fram í Stonewolf Country Club í Belleville, Illinois.

Þátttakendur voru 52 frá 9 háskólum.

Arnar Geir náði þeim glæsilega árangri að landa 2. sætinu í einstaklingskeppninni, sem er besti árangur hans til þessa í bandaríska háskólagolfinu!!!

Arnar Geir var á skori upp á 3 yfir pari, 224 högg (76 75 73).

Missouri Valley lið Arnars Geirs varð í 1. sæti í mótinu í liðakeppninni!!!

Næsta mót Missouri Valley verður á vorönn.