Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2019 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Arnar Geir & félagar luku keppni í 4. sæti í Kansas

Margfaldur klúbbmeistari GSS, Arnar Geir Hjartarson og félagar í Missouri Valley tóku þátt í Mid South Classic mótinu, sem fór fram á Sand Creek Station golfvellinum, í Newton, Kansas, dagana 23.-24. september.

Þátttakendur voru 72 frá 12 háskólum.

Arnar Geir lauk keppni T-26 í einstaklingskeppninni; lék á samtals 10 yfir pari, 226 höggi (74 77 75).

Lið Arnars Geirs, Missouri Valley varð í 4. sæti í liðakeppninni.

Sjá má lokastöðuna á Mid South Classic með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Arnars Geirs og félaga er 7. október nk.

Í aðalmyndaglugga:  Arnar Geir Hjartarson, GSS og Missouri Valley.