Arna Rún Kristjánsdóttir, GM. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2020 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Arna Rún varð T-9 í S-Karólínu

Arna Rún Kristjánsdóttir, GM og félagar í Grand Valley State University tóku þátt í Low Country Invitational mótinu, sem fram fór í Crescent Pointe golfklúbbnum í Bluffton, Suður-Karólínu, dagana 2.-3. mars sl. og lauk í gær.

Þátttakendur voru 77 frá 13 háskólum.

Arna Rún lék á samtals 9 yfir pari, 151 höggi (76 75) og varð jöfn 3 öðrum í 9. sæti (T-9). Glæsilegur árangur þetta á Örnu Rún!!!

Lið Grand Valley hafnaði í 4. sæti í liðakeppninni og var Arna Rún ásamt félaga sínum, Abbey Pierce, á besta skori Grand Valley.

Sjá má lokastöðuna í Low Country Invitational með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Grand Valley er í Windemere, Flórída, heimkynnum Tiger Woods, 9. mars n.k.