Andri Þór Björnsson, GR. Mynd: Golf 1 Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór og Nicholls í 6. sæti og Ari, Theodór og Arkansas Monticello í 11. sæti e. fyrri dag ULM Wallace Jones Inv.
Það eru hvorki fleiri né færri en 3 íslenskir kylfingar sem taka þátt í ULM Wallace Jones Inv., en mótið fer fram í Southern Pines golfklúbbnum í Calhoun, Louisiana.
Annars vegar er það Andri Þór Björnsson, GR og golflið Nicholls State og hins vegar Ari Magnússon, GKG og Theodór Emil Karlsson, GKJ og golflið Arkansas Monticello.
Þátttakendur í heild eru 72 frá 14 háskólum. Mótið stendur 31. mars – 1. apríl 2014 og lýkur því síðar í dag.
Eftir fyrri dag og 2 leikna hringi er Andri Þór í 28. sæti í einstaklingskeppninni á samtals 155 höggum (76 79). Hann er á 2. besta skori Nicholls State, sem er sem stendur í 6. sætinu í liðakeppninni.
Theodór Emil er í 48. sætinu á samtals 159 höggum (85 74) en hann átt fremur erfiða byrjun og er með 11 högga sveiflu milli hringja! Ari Magnússon er í 61. sætinu á samtals 164 höggum (85 79) og átti líkt og Theodór erfiða byrjun. Theodór er á 3.-4. besta skori Arkansas Monticello en skor Ara telur ekki, að svo komnu.
Lokahringurinn verður líkt og áður segir leikinn síðar í dag og má fylgjast með gengi Íslendinganna með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
