Andri Þór Björnsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 4. 2014 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór í 12. sæti e. 1. dag í Alabama

Andri Þór Björnsson, GR og félagar í golfliði Nicholls State, The Colonels, taka þátt í ASU Fall Beach Classic, sem fram fer í Penninsula Golf Club, Golf Shores, Alabama.

Mótið hófst í gær 3. nóvember 2014 og lýkur í dag 4. nóvember 2014.

Þátttakendur eru 48 frá 8 háskólum.

Andri Þór lék fyrstu tvo hringina á samtals 6 yfir pari 150 höggum (76 74) og er í 12. sæti í einstaklingskeppninni.

Hann var á næstbesta skori Nicholls State og á þátt í að Nicholls State er í 5. sæti í liðakeppninni eftir 1. dag.

Til þess að fylgjast með gengi Andra Þór og The Colonels SMELLIÐ HÉR: