Andri Þór Björnsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2015 | 15:47

Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór lauk leik T-11 á ULM Wallace Jones Inv.

Andri Þór Björnsson, GR og Nicholls State tóku þátt í ULM Wallace Jones boðsmótinu.

Mótið fór fram á golfvelli Black Bear golfklúbbsins í Delhi, Louisiana, dagana 23.-24. mars og lauk því í gær.

Þátttakendur voru 88 frá 15 háskólum.

Andri Þór lauk keppni T-11 í einstaklingskeppninni, en hann lék samtals á sléttu pari, 216 höggum (73 72 71).

Í liðakeppninni lauk golflið Nicholls State keppni í 7. sæti.

Til þess að sjá lokastöðuna á ULM Wallace Jones Inv. SMELLIÐ HÉR: