Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór lauk leik á besta skori Nicholls í Texas
Andri Þór Björnsson, GR og Ragnar Már Garðarsson , GKG, tóku báðir þátt í Huskies Invitational mótinu í Houston, Texas.
Mótið stóð dagana 30. september -1. október 2013 og lauk í gær. Þátttakendur voru 75 frá 13 háskólum.
Andri Þór og golflið Nicholls höfnuðu í 7. sætinu í mótinu í liðakeppninni og var Andri Þór á besta skori liðsins.
Hann lék samtals á 217 höggum (71 74 72).
Ragnar Már og McNeese luku keppni í 4. sæti í liðakeppninni en Ragnar Már var á 5. og lakasta skori liðsins og taldi það ekki í árangri liðsins.
Ragnar Már lék á samtals 227 höggum (74 78 75) og bætti sig um 3 högg milli daga og fór úr 56. sætinu í einstaklingskeppninni í 47. sætið.
Næsta mót Andra Þórs og golfliðs Nicholls og Ragnars Más og golfliðs McNeese er Jim Rivers Intercollegiate, sem fram fer 21.-22. október n.k. á hinum fræga Squire Creek golfvelli í Choudrant, Louisiana en völlurinn hefir 4 sinnum verið valinn besti goflvöllur í Louisiana og hann var eitt sinn á lista Golf Digest yfir 5 bestu golfvelli í Bandaríkjunum.
Til þess að sjá lokastöðuna á Huskie Invitational mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

