Andri Þór Björnsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2013 | 03:30

Bandaríska háskólagolfið: Andri og Haraldur luku leik í Alabama

Andri Þór Björnsson, GR og golflið Nicholls State og Haraldur Franklín Magnús, GR og golflið Louisiana Lafayette luku leik í gær á ASU Fall Beach Classic, sem fram fór í Peninsula Golf & Racquet Club á Golf Shores, Alabama. Þetta var síðasta mót Andra Þórs og Haraldar Franklín fyrir jól.

Þátttakendur í ASU Fall Beach Classic voru 73 frá 13 háskólum.  Mótið stóð 4.-5. nóvember og var lokahringurinn leikinn í gær.

Haraldur Franklín Magnús. Mynd: Golf 1

Haraldur Franklín Magnús. Mynd: Golf 1

Haraldur Franklín og Louisiana Lafayette urðu í 4. sæti í liðakeppninni. Skor Haraldar taldi ekki en hann var á 5. og lakasta skori í liði sínu. Haraldur Franklín lék á samtals 227 höggum (75 73 79) og varð T-36.

Andri Þór var hins vegar á 3. besti skori í liði sínu, sem varð í 11. sæti í liðakeppninni. Í einstaklingskeppninni varð Andri Þór T-43 á samtals 229 höggum (75 77 77).

Til þess að sjá lokastöðuna á ASU mótinu SMELLIÐ HÉR: