Andri Þór Björnsson, GR. Mynd: Golf 1 Bandaríska háskólagolfið: Andri og Haraldur luku leik í Alabama
Andri Þór Björnsson, GR og golflið Nicholls State og Haraldur Franklín Magnús, GR og golflið Louisiana Lafayette luku leik í gær á ASU Fall Beach Classic, sem fram fór í Peninsula Golf & Racquet Club á Golf Shores, Alabama. Þetta var síðasta mót Andra Þórs og Haraldar Franklín fyrir jól.
Þátttakendur í ASU Fall Beach Classic voru 73 frá 13 háskólum. Mótið stóð 4.-5. nóvember og var lokahringurinn leikinn í gær.
Haraldur Franklín og Louisiana Lafayette urðu í 4. sæti í liðakeppninni. Skor Haraldar taldi ekki en hann var á 5. og lakasta skori í liði sínu. Haraldur Franklín lék á samtals 227 höggum (75 73 79) og varð T-36.
Andri Þór var hins vegar á 3. besti skori í liði sínu, sem varð í 11. sæti í liðakeppninni. Í einstaklingskeppninni varð Andri Þór T-43 á samtals 229 höggum (75 77 77).
Til þess að sjá lokastöðuna á ASU mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

